
Eftir skotáverka og langa sjúkrahússvist snýr Martin Beck aftur til vinnu sem forstöðumaður fyrir morðdeild ríkislögreglunnar – og til að fara rólega af stað tekur hann að sér mál manns sem hefur fundist skotinn í herbergi þar sem bæði dyr og gluggar voru lokuð og læst að innanverðu. Samtímis vinna starfsfélagar hans að því að upplýsa fjölmörg bankarán, og skynsemi hans og köld rökhugsun á ekki minnstan þátt í því að raða öllum brotunum saman í heillega mynd.Luktar dyr er áttunda bókin í sagnaflokknum Skáldsaga um glæp eftir sænsku rithöfundana Maj Sjöwall og Per Wahlöö.