
Friðsælt sveitaþorp kemst í sviðsljósið þegar kona hverfur á leið heim úr vinnu og finnst síðar myrt. Yfirmaður morðdeildarinnar, Martin Beck, tekur sjálfur að sér rannsóknina en verður lítið ágengt. Almenningsálitið hefur þegar fundið sökudólg og yfirstjórn lögreglunnar krefst þess að látið verði til skarar skríða. Þá kemur upp annað mál sem grípur athyglina – LÖGREGLUMORÐ.Lögreglumorð er níunda bókin í sagnaflokknum Skáldsaga um glæp eftir sænsku rithöfundana Maj Sjöwall og Per Wahlöö.